
Síld og fiskur ehf - Ali
Síld og fiskur ehf. framleiðir og selur matvæli undir vörumerkinu Ali, sem er eitt þekktasta og rótgrónasta vörumerki landsins. Saga Síldar og fisks spannar áratugi og byggir á trausti, gæðum og nýsköpun. Arfur félagsins og ímynd vörumerkisins Ali er mikilvægur þáttur í velgengni fyrirtækisins á íslenskum matvörumarkaði sem einn stærsti framleiðandi landsins á afurðum unnum úr grísakjöti.
Fyrirtækið býr yfir öflugum og góðum tækjabúnaði sem tryggir stöðugleika og gæði í framleiðsluferlinu. Áhersla er lögð á strangar gæðakröfur, matvælaöryggi og skilvirkni í allri vinnslu. Jafnframt er markviss vöruþróun mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækisins, þar sem hlustað er á þarfir og væntingar neytenda með það að markmiði að bjóða upp á nýjar og spennandi vörur neytendum til hagsbóta.
Almennur starfsmaður í úrbeiningardeild
Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum aðilum í framleiðslustörf hjá Kjötvinnslunni Síld og fisk (Ali).
- Vinnutími:
- Mánudagur: 07:00 - 15:00
- Þriðjudagur til fimmtudagur: 06:00-15:00
- Föstudagur: 07:00 - 11:30
Síld og fiskur (Ali) er dótturfélag Langasjávar ehf. Félög í samstæðunni sérhæfa sig í framleiðslu og dreifingu á matvælum. Fyrirtækið vinnur markvisst að jafnréttismálum og stuðlar að vexti starfsmanna.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Úrbeining á svínakjöti
- Gæðaeftirlit og fylgni við öryggisreglur
- Fylgja verklagsreglum og öryggisstöðlum í vinnslu
- Þrif og viðhald á vinnusvæði
- Önnur tilfallandi verkefni tengd framleiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af úrbeiningu á kjöti
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvætt hugarfar og góð samskiptahæfni
- Hæfni til vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Gott auga fyrir smáatriðum og nákvæmni í vinnubrögðum
- Líkamlegt hreysti
Auglýsing birt24. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
PólskaValkvætt
Staðsetning
Dalshraun 9B, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Production employee
Eldum rétt

Framleiðslustarf - Production Worker
Icelandic Glacial

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Framleiðslustarf í Silicone - Kvöldvaktir
Embla Medical | Össur

Lyfjaskömmtun Apótekarans - framtíðarstarf
Apótekarinn

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.

Head of Warehouses - Alvotech
Alvotech hf

Starfsmaður í Framleiðslu
Bláa Lónið

We are seeking new cooker to join our team
Flame Restaurant