
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili eru rekin í samsteypu ásamt Eir-öryggisíbúðum. Á heimilunum er fagleg umönnun, öflug læknisþjónusta með ýmsum sérúrræðum fyrir hópa svo sem blinda og sjónskerta, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% vistmanna útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks, um 650 manns, með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !

Alhliða störf í eignaumsýslu - tímabundin ráðning
Óskað er eftir ráða starfsmann tímabundið í alhliða eignaumsýslu hjá Eir hjúkrunarheimili og tengdum. Starfið felur í sér að sinna ýmsum beiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri stofnunarinnar. Mikið af fjölbreyttum verkefnum í lifandi byggingum Eirar og tengdum félögum.
Starfið er laust strax og ráðning er út sumarið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir ýmsum verkbeiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri.
- Umhirða, umsjón og almennt viðhald eigna, bílastæða og lóða.
- Fjarlægir rusl og lín af deildum.
- Þrif á húsgögnum og fleira.
- Matarsendingar.
- Sendast með sýni til rannsóknar.
- Sendast eftir vörum til viðhalds og fleira.
- Auk annarra sérverkefna sem næsti yfirmaður eða stjórnandi felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af viðhaldi eigna er kostur.
- Að umsækjandi sé 19 ára á árinu eða eldri.
- Bílpróf er skylda
- Líkamlegt hreysti
- Góð mannleg samskipti og rík þjónustulund
- Jákvæðni, greiningarhæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi
Boðið er upp á
- Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
- 36 stunda vinnuviku
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með og með 6.apríl 2025. Við hvetjum öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir:Guðmundur Kristinn Árnason, Deildarstjóri eignaumsýslu, í síma 522-5789 eða [email protected]
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.
Auglýsing birt19. mars 2025
Umsóknarfrestur6. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HandlagniJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiStundvísiSveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starfskraftur í steinsmiðju óskast!
Fígaró náttúrusteinn

Öflugur starfsmaður á trésmíðaverkstæði og uppsetningar.
Fanntófell ehf

Umsjónarmaður fasteigna Í Hafnarborg
Hafnarfjarðarbær

Sumarafleysingamaður í Ölfusborgum
Sameignarfélag Ölfusborga

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnuðum.
Járn og Gler hf

Starfsfólk í loftstokkahreinsun
Hitatækni ehf

Smiður / Umsjónamaður fasteigna / endurbætur og viðhald
Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur

Umsjónarmaður fasteigna
Stracta Hótel

Múrari / Mason
Íslenskir Múrverktakar ehf.

Starfsmaður í eignaumsýslu
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Umsjónarmaður skólahúsnæðis í Salaskóla
Salaskóli

Akranes: leitum að sölufulltrúa í málninga- og árstíðadeild
Húsasmiðjan