Álftanesskóli
Álftanesskóli
Álftanesskóli

Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístundaheimilið

Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístund. Frístundastarf fer fram frá kl. 13.15 eftir að skóla lýkur og til kl. 16.30. Um er að ræða hlutastarf sem hentar mjög vel sem aukavinna með námi.

Í Álftanesskóla er unnið af miklum metnaði og áhersla lögð á notalegt andrúmsloft, umhyggju og góðan árangur. Í skólanum eru persónuleg samskipti milli nemenda, starfsfólks og foreldra. Samvinna er mikil og góð á milli allra þeirra sem starfa í skólasamfélaginu. Í skólanum ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.alftanesskoli.is.

Viðkomandi þarf að vera tilbúin að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Álftanesskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í skipulagningu og framkvæmd á faglegu frístundastarfi
  • Stýra hópum í frístundastarfi og leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
  • Ánægja af starfi með börnum
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Auglýsing birt7. október 2024
Umsóknarfrestur22. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Breiðumýri, 225 Breiðumýri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar