JYSK
JYSK
JYSK

Akureyri - Starfsfólk í Verslun - Hlutastarf

Okkur vantar liðsauka í frábæra teymið okkar í verslun JYSK á Akureyri!

JYSK er ein kunnasta heimilisvöruverslun landsins og hefur fyrirtækið verið starfrækt í 37 ár. Verslanir JYSK á Íslandi eru 7 talsins og eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi.

Býrð þú yfir ríkri þjónustulund, jákvæðni og hefur gaman af fólki? Þá gætum við verið að leita að þér! Í boði er spennandi starf með frábæru samstarfsfólki í verslun JYSK á Akureyri.

Um er að ræða hlutastarf þar sem unnið er aðra hverja helgi skv. opnunartíma verslunar með möguleika á meiri vinnu.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn afgreiðsla og sölustörf
  • Áfyllingar og útstillingar
  • Vöruframsetningar og verðmerkingar
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af afgreiðslustörfum er æskileg
  • Sjálfstæði í starfi og geta til að vinna í hóp
  • Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og snyrtimennska
Auglýsing birt7. október 2024
Umsóknarfrestur21. október 2024
Staðsetning
Austursíða 2, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar