Áhugavert skrifstofustarf á Brjóstamiðstöð
Við leitum að metnaðarfullum samstarfsmanni til að sinna sérhæfðum skrifstofustörfum á göngudeild Brjóstamiðstöðvar. Ef þú ert lausnamiðaður, þjónustulipur og með góða samskiptahæfni þá gæti þetta hentað þér. Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Starfshlutfall er 100%, unnið er í dagvinnu. Upphaf starfs er skv. samkomulagi.
Á Brjóstamiðstöð fer fram öflug starfsemi og starfar þar öflugt teymi sérfræðinga frá mörgum sérgreinum og fagstéttum. Þjónustan er í stöðugri þróun þar sem mikil áhersla er lögð á þjónustumiðaða nálgun og tæknivæðingu eininga innan Brjóstamiðstöðvar. Við leggjum mikla áherslu á teymisvinnu og uppbyggingu mannauðs með það í huga að byggja upp skemmtilegan vinnustað með möguleika á að taka þátt í daglegri umbótavinnu samhliða hefðbundnum störfum. Lögð er rík áhersla á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart skjólstæðingum og samstarfsfólki.
Vinnustaðurinn og staðsetningin er heldur ekki af verri endanum. Brjóstamiðstöð er staðsett á efstu hæð að Eiríksgötu 5 í hjarta Reykjavíkur þar sem útsýnið fangar mann á hverjum degi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.