
T Plús
T Plús er íslenskt verðbréfafyrirtæki sem sérhæfir sig í bakvinnsluþjónustu fyrir fjármálageirann.
Verkefni félagsins eru á sviði verðbréfauppgjörs, vörsluþjónustu, bókhalds, innheimtu séreignasparnaðar og þjónustu við verðbréfasjóði.
Viðskiptavinir T Plús eru að mestu verðbréfafyrirtæki, fagfjárfestar, rekstrarfélög verðbréfasjóða, lífeyrissjóðir, tryggingafélög og vörsluaðilar séreignasparnaðar.
Áhættustjóri
T PLÚS óskar eftir kraftmiklum og ábyrgum aðila í starf áhættustjóra.
Viðkomandi mun taka virkan þátt í að móta starfið ásamt því að vera þátttakandi í áframhaldandi framþróun og stækkun fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með skipulagi og framkvæmd áhættustýringar og innra eftirlits
- Umsjón með mótun áhættustefnu og áhættustýringarstefnu
- Eftirlit með áhættu
- Eftirlit með AML og KYC ferlum
- Heildarsýn yfir verkferla, áhættumöt, skýrslur innri endurskoðanda, innri úttektir o.fl.
- Samskipti, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til eftirlitsaðila og stjórnenda
- Önnur verkefni í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði fjármála, verk- eða tölfræði, próf í verðbréfaviðskiptum er kostur
- Reynsla af fjármálamarkaði, áhættustýringu og greiningu
- Önnur haldbær reynsla sem nýtist í starfi
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Rík færni til samstarfs og samskipta
- Heiðarleiki og gott orðspor
- Gott vald á ensku og íslensku
- Almenn góð tölvukunnátta og tæknilæsi.
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skipagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
