

Afgreiðslustarf hjá Orrifinn Skartgripum
Orrifinn Skartgripir er skartgripaverslun á Skólavörðustíg 43 í miðbæ Reykjavíkur.
Við leitum að brosmildum og þjónustuglöðum einstaklingi í hlutastarf við afgreiðslu sem uppfyllir eftirfarandi kröfur:
- Hefur náð 20 ára aldri
- Hefur áhuga á skartgripum og hönnun
- Hefur ríka þjónustulund og á auðvelt með samskipti við fólk
- Talar íslensku fullkomlega og hefur góð tök á ensku
- Hentar að vinna hlutastarf
- Getur hafið störf í Maí & getur ráðið sig í a.m.k 1 ár
- Getur tekið ábyrgð
- Er stundvís
- Er reyklaus/tóbakslaus/veiplaus
Vinnutími:
Alla mánuði ársins fyrir utan sumartímann er vöktunum á virkum dögum hagað þannig að starfsmaðurinn vinnur aðra hverja viku tvo virka daga kl 10-18 og aðra hverja viku þrjá virka daga kl 10-18. Til viðbótar við virku dagana vinnur starfsmaðurinn annan til þriðja hvern laugardag.
Yfir sumartímann er starfshlutfallið hærra en restina af árinu. Fleiri virkir dagar eru því unnir í viku á sumrin og sunnudagsopnun bætist við helgarvinnuna.
Vinnutími á virkum dögum: kl. 10-18
Vinnutími á laugardögum: kl. 12-17 (& sunnudögum á sumrin kl 12-17)
VINSAMLEGA SKILIÐ UMSÓKN FYRIR 13.APRÍL
- Afgreiðsla í verslun
- Þjónusta við kúnna
- Yfirsýn og talning á lager
- Afgreiðsla vef-pantanna
- Umsjón og yfirsýn pantanna frá endursöluaðilum
Íslenska
Enska










