

Afgreiðslu og Sölufulltrúi
Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað með hressu fólki?
Eru þjónustulund, jákvæðni og frumkvæði þínir styrkleikar?
Þá viljum við fá þig til okkar. Við erum að leita að röskum og jákvæðum starfsmönnum til að slást í hópinn með okkur í fullt starf, í Smáralind og Kringlu.
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund, dugnaður og jákvæðni
- Áhugi á útivist og íþróttum
- Reynsla af sölustörfum æskileg
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Hreint sakarvottorð
Vinnutími Smáralind
Mánudaga til föstudaga 10:40 – 19:00
Aðra hverja helgi
Laugardaga.10:30-18:00
Sunnudaga 11:30-17:00
Vinnutími Kringlu
Mánudaga til föstudaga 09:50 – 18:30
Aðra hverja helgi
Laugardaga.10:50-18:00
Sunnudaga 11:50-17:00
Einnig er samið um aðra vinnutíma.
Gott er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Æskilegt er að umsækjandi sé 20ára eða eldri.
*Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á [email protected]
ÚTILÍF ER ÖFLUGT SMÁSÖLUFYRIRTÆKI Á SVIÐI ÍÞRÓTTA OG ÚTIVISTAR
Fyrirtækið rekur í dag tvær stórglæsilegar verslanir á höfuðborgarsvæðinu, í Kringlunni og Smáralind.
Útilíf er gæðafyrirtæki þar sem þjónusta við viðskiptavini er í fyrirrúmi. Við leggjum áherslu á liðsheild í skemmtilegu og eftirsóknarverðu starfsumhverfi þar sem samvinna er lykilatriði.
Hjá Útilíf fá nýir starfsmenn þjálfun til þess að takast á við starf sitt og við veitum þeim grunnþekkingu og fræðslu um vörumerki
og deildir fyrirtækisins. Lykillinn að velgengni í starfi hjá Útilíf er
framúrskarandi þjónustuhæfileikar og góð mannleg samskipti.
Við leggjum metnað okkar í að mennta starfsfólk á þessum sviðum.
Útilíf vinnur eftir metnaðafullri áætlun um jafnlaunavottun og því hvetjum við alla til að sækja um.











