
Náttúrufræðistofnun
Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og er leitast við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru fimm, í Garðabæ, á Akranesi, við Mývatn, á Breiðdalsvík og Akureyri.
Aðstoðarmanneskja við skordýragreiningar
Náttúrufræðistofnun óskar eftir að ráða tímabundið í starf sérfræðings til að taka þátt í verkefnum stofnunarinnar á sviði smádýra. Starfið felur í sér skráningu og úrvinnslu gagna, rannsóknir og greiningarvinnu undir handleiðslu og í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunar.
Um hlutastarf er að ræða en hlutfall og vinnutími getur verið sveigjanlegur eftir samkomulagi.
Starfsstöð er í Urriðaholti, Garðabæ. Ráðningatími er frá 15. ágúst til 15. desember 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við vöktun og rannsóknir á sviði smádýra
- Tegundagreining skordýra
- Skráning í gagnagrunn
- Vettvangsvinna
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á smádýrafánu landsins og smádýragreiningum er æskileg
- Menntun sem nýtist í starfi
- Marktæk reynsla af vettvangsvinnu er kostur
- Lipurð í mannlegum samskiptum og ríkur vilji til samstarfs innan og utan stofnunar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og vandvi
Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur6. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
