

Aðstoðarmanneskja á rannsóknarstofu
Geymsluþolsdeild Coripharma er hluti af þróunarsviði fyrirtækisins og gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja gæði, öryggi og virkni lyfja yfir líftíma þeirra. Deildin annast stöðugleikarannsóknir á lyfjum bæði á þróunarstigi, og eftir markaðssetningu, í samræmi við ströng gæðaviðmið lyfjaiðnaðarins.
Við leitum að öflugri og samviskusamri aðstoðarmanneskju á rannsóknarstofu sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum í faglegu rannsóknarumhverfi. Starfið felur meðal annars í sér framkvæmd leysniprófana, sýnaundirbúning, tæknilegar prófanir, umsjón með tækjabúnaði og skjölun rannsóknargagna samkvæmt gæðakröfum fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
- Framkvæmd UV - leysniprófana
- Sýnataka fyrir HPLC - leysniprófanir
- Sýnaundirbúningur fyrir HPLC - mælingar
- Framkvæmd tækniprófana á framleiðsluvörum
- Kvarðarnir, eftirlit og umsjón með tækjabúnaði rannsóknarstofunnar
- Skráning niðurstaðna og skjölun gagna í samræmi við gæðakerfi fyrirtækisins
- Þátttaka í almennum verkefnum tengdum rekstri rannsóknarstofunnar og gæðakerfi
Hæfnikröfur
- Menntun sem lyfjatæknir, stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af rannsóknarstofustörfum er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Nákvæm, ábyrg og sjálfstæð vinnubrögð
Við bjóðum
- Fjölbreytt og áhugavert starf í alþjóðlegu og vaxandi lyfjafyrirtæki
- Tækifæri til að læra og þróast í öflugu rannsóknarumhverfi
- Samheldinn og faglegan vinnustað þar sem gæði, öryggi og samvinna eru í fyrirrúmi
- Sveigjanlegan vinnutíma
- Niðurgreiddan hádegismat
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst næstkomandi.
Enska
Íslenska










