

Aðstoðarmaður/öryggisvörður útkallsteymi yfirsetu bakvaktir
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) auglýsir nýtt starf aðstoðarmanns/öryggisvörð í útkallsteymi yfirsetu. Um er að ræða nýtt og spennandi starf sem er hluti af þróunarverkefni í öryggismálum innan SAk. Teymið sinnir útköllum/yfirsetum á fjölbreyttum hópi sjúklinga með sérstakar stuðnings- og öryggisþarfir á öllum deildum SAk. Aðstoðarmaður/öryggisvörður fá tilheyrandi þjálfun fyrir starfið.
Við sækjumst eftir sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingum sem hafa gaman af fjölbreyttu starfsumhverfi og áhuga á fólki og jákvæðum samskiptum. Umsækjendur verða að vera tilbúnir til að starfa í teymi og vinna samkvæmt viðurkenndum verklagsferlum og fara á milli deilda sjúkrahússins eftir þörfum þjónustunnar hverju sinni. Allir fá tilheyrandi þjálfun
Unnið verður bakvaktir virka daga (kvöld og nætur) og um helgar.
Um er að ræða 60-100% tímabundnastöðu með möguleika á fastráðningu. Upphaf starfs er í maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
-
Veita einstaklingshæfða aðhlynningu og tryggja öryggi sjúklinga, með tilheyrandi þjálfun til undirbúnings.
-
Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
-
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
-
Reynsla af umönnun er kostur
-
Reynsla af stuðningi við fólk með krefjandi stuðningsþarfir er kostur
-
Hæfni og geta til að vinna sjálfstætt, í teymi og í samvinnu við aðra meðferðaraðila
-
Sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum
-
Góð almenn tölvukunnátta og færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku; viðbótartungumálakunnátta er kostur













