Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili eru rekin í samsteypu ásamt Eir-öryggisíbúðum. Á heimilunum er fagleg umönnun, öflug læknisþjónusta með ýmsum sérúrræðum fyrir hópa svo sem blinda og sjónskerta, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% vistmanna útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks, um 650 manns, með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !
Aðstoðarmaður iðjuþjálfa / iðjuþjálfanemi
Langar þig að vinna með reyndum iðjuþjálfum í sumar, í góðu teymi og sinna spennandi verkefnum?
Í boði er spennandi sumarstarf með möguleika á áframhaldandi starfi fyrir sjálfstæðan einstakling á Eir og Hömrum hjúkrunarheimili. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem aðstoðarmenn iðjuþjálfa sinna bæði íbúum á heimilisdeildum og skjólstæðingum á endurhæfingardeildinni.
Umsækjandi þarf að vera fær í mannlegum samskiptum, geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi.
Á Eir eru 160 íbúar í hjúkrunarrýmum auk skjólstæðinga í 44 endurhæfingarrýmum.
Á Hömrum eru 33 íbúar í hjúkrunarrýmum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar iðjuþjálfa í skipulögðu hópastarfi
- Aðstoðar iðjuþjálfa við að þjónusta skjólstæðinga endurhæfingardeildar
- Aðstoðar með fastar samverustundir á heimilinu í samvinnu við iðjuþjálfa
- Aðstoðar við stærri viðburði
- Aðstoðar í vinnustofu iðjuþjálfunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Íslenskukunnátta
Auglýsing birt14. janúar 2025
Umsóknarfrestur31. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Sumarstarf á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
Seltjörn hjúkrunarheimili
Starfsþjálfun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
SÁÁ
Staða sjúkraliða við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
Félagsliði í stuðningsþjónustu - kvöld og helgarþjónusta
Hafnarfjarðarbær
Aðstoðarmaður Tannréttingasérfræðings
Teinar slf
PA óskast í fullt starf
Aðstoð óskast
Umönnun framtíðarstarf - Nesvellir
Hrafnista
Aðstoðarmaður iðjuþjálfa
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Hverfisgata
Hafnarfjarðarbær
Starfskraftur óskast í VoR teymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hjúkrunar- og læknanemar - sumarafleysingar
Skjólgarður hjúkrunarheimili