Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa
Rangárþing eystra auglýsir laust til umsóknar 100% starf aðstoðarmanns byggingarfulltrúa. Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa starfar með skipulags- og byggingarfulltrúa við almenna meðferð byggingarmála samkvæmt lögum um mannvirki svo sem við móttöku og yfirferð séruppdrátta, úttektir, mælingar, samskipti við umsækjendur, hönnuði, stofnanir og fleira. Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til þess að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf.
· Úttektir og eftirlit með byggingum og framkvæmdum.
· Yfirferð aðal- og séruppdrátta.
· Skráning mannvirkja, fasteigna og landeigna í skráningarforriti Fasteignaskrár.
· Umsagnir vegna rekstrar- og starfsleyfa.
· Skráningar í Mannvirkjagátt og málakerfi sveitarfélagsins.
· Útsetning lóða og aðrar mælingar.
· Samskipti við hönnuði, byggingaraðila, stofnanir og íbúa.
· Ýmis önnur tilfallandi verkefni á sviði skipulags- og byggingarmála.
· Krafa er um háskólapróf sem nýtist í starfi eða iðnmenntun á sviði byggingamála.
· Reynsla á sviði skipulags- og byggingarmála er kostur.
· Þekking á forritunum AutoCAD og Qgis er æskileg.
· Góð almenn tölvukunnátta skilyrði.
· Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði.
· Þekking á lagaumhverfi skipulags- og byggingarmála er kostur.
· Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð.
· Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti.
· Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum.