
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 30 þúsund íbúa og um um 2500 starfsfólk sem sinna fjölbreyttum störfum á um 70 starfsstöðvum um allan bæ. Mannauðurinn er okkur dýrmætur.
Lögð er áhersla á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við viljum vera áhugaverður og góður vinustaður og árangur okkar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn.
Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að efla þekkingu sína, hefur tækifæri til þróunar og fái hvatningu til að sýna frumkvæði og njóta sín í starfi sem skilar sér í aukinni starfsánægju og góðri þjónustu við bæjarbúa.
Við erum heilsueflandi vinnustaður og viljum að öllum líði vel í vinnunni og bæði stjórnendur og starfsfólk leggja sitt að mörkum við að ýta undir og skapa sem best vinnuumhverfi á öllum okkar starfsstöðvum.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í hóp starfsmanna hjá Hafnarfjarðarbæ þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn.

Aðstoðarleikskólastjóri - Hamravellir
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða aðstoðarleikskólastjóra í 100% starf.
Hamravellir er fjögurra deilda leikskóli staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Til stendur að fjölga deildum leikskólans í sex á haustmánuðum og verða þá allt að 124 börn í leikskólanum og um 40 starfsmenn. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan. Við leitum að öflugum og traustum stjórnanda í okkar góða starfsmannahóp.
Ráðið verður í starfið eins fljótt og auðið er.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af stjórnun æskileg
Reynsla af leikskólastarfi æskileg
Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og/eða kennslufræða kostur
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Áhugi á að vinna með börnum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Góð tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur náið með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á rekstri leikskólans og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrá og skólanámskrá leikskólans og vinnur að skipulagningu kennslu, reglulegu mati og áætlunargerð
Er faglegur leiðtogi í öllu starfi leikskólans
Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu í samráði við leikskólastjóra og deildarstjóra og situr foreldrafundi eftir þörfum
Situr sameiginlega stjórnendafundi hjá sveitarfélagi
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt5. ágúst 2022
Umsóknarfrestur19. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hvannavellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð

Sérkennari/ísatkennari á unglingastig óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Þroskaþjálfi óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Leikskólinn Eyrarskjól - Stuðningsfulltrúi
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Leikskólinn Eyrarskjól - Leikskólakennari/Leiðbeinandi
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Leiðbeinandi í leikskóla - tímabundin ráðning
Leikskólinn Tjarnarskógur

Leikskólakennari
Leikskólinn Tjarnarskógur

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból II

Viltu vera með?
LFA ehf.

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli