

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Sólhvörf er staðsettur í fallegu umhverfi Elliðavatns, við Álfkonuhvarf 17 í Kópavogi. Hann tók til starfa árið 2008 og þar dvelja um 130 börn á aldrinum 1-6 ára á sjö deildum.
Sólhvörf fylgir áherslum Hugsmíðahyggjunnar í uppeldisstarfi leikskólans með áherslu á sjálfræði barnsins, þar sem börn læra með því að prófa sig áfram í leik og starfi. Leikurinn er kjarninn í uppeldi og menntun hvers barns en í gegnum leikinn byggir barnið upp þekkingu. Lögð er áhersla á að börn læri að bera virðingu og umhyggju fyrir öðru fólki og þrói með sér samkennd, tillitssemi og vináttu.
Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra, er leiðandi aðili í skipulagi faglegs starfs innan leikskólans og tekur virkan þátt í daglegri stjórnun ásamt virku samstarfi við foreldra. Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Kópavogsbæjar.
Einkunnarorð skólans eru virðing, sjálfræði og virkni.
Heimasíðan okkar er: https://solhvorf.kopavogur.is/
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins
- Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram
- Er staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans
- Faglegur leiðtogi og mentor fyrir aðra starfsmenn
- Tekur þátt í skipulagsvinnu og mótun skólastarfsins
- Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum
- Tekur þátt í ráðningum starfsfólks
- Tekur þátt í launavinnslu, skýrslu- og áætlanagerð
- Tekur þátt í innkaupum og rekstri skólans
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun í stjórnun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Reynsla af starfi og stjórnun leikskóla
- Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
- Sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðuð nálgun og metnaður til að ná árangri í starfi
- Frumkvæði, forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Styttri vinnuvika - stytting að hluta til notuð í páskafrí, tvö vetrarfrí og jólafrí.
Frítt fæði.
Íslenska
