
Borg Hótelrekstur ehf.
Hótel Borg er glæsilegt hótel staðsett við Pósthússtræti í Reykjavík. Á hótelinu eru 99 herbergi, þar af eru 6 svítur og ein turnsvíta. Herbergin eru öll innréttuð í Art Deco stíl og endurspegla þannig ytra útlit og sögu hótelsins.
Keahótel rekur tíu hótel sem eru Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Grímsborgir og Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal.
Keahótel er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða viðskiptavini.

Aðstoðarhótelstjóri á Hótel Borg og Apótek Hótel
Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf aðstoðarhótelstjóra á Hótel Borg og Apótek Hóteli
Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og skipulagshæfileika til að ganga í lið með okkur og veita gestum framúrskarandi þjónustu.
Hótel Borg og Apótek hótel eru glæsileg hótel í rekstri Keahótela ehf. og eru staðsett í hjarta Reykjavíkur. Hótelin eru í sögufrægum byggingum og búa yfir fallegri hönnun sem endurspeglar sögu hótelanna og hafa skipað sér verðugan sess í huga ferðamanna. Hótelin eru þekkt fyrir gæði og framúrskarandi þjónustu þar sem upplifun gesta er höfð í fyrirrúmi.
Hótelin hafa samtals 144 herbergi en þar af eru 14 svítur og tvær turnsvítur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með gestamóttöku og starfsfólki í samvinnu við hótelstjóra
- Þjónustu og gæðaeftirlit
- Yfirumsjón með bókunum, samskipti við ferðaskrifstofur og gesti
- Skipulagning á komu gesta
- Mönnun vakta og þjálfun starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af hótelstörfum nauðsynleg
- Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Pósthússtræti 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
