Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Aðstoðarforstöðumaður – frístundaheimilið Regnbogaland - afleysing í 1 ár

Frístundamiðstöðin Brúin og frístundaheimilið Regnbogaland óska eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Markmið starfsins er að veita 6 – 9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls.Frístundaheimilið Regnbogaland er staðsett við Logafold 1, 112 Reykjavík.Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegri starfsemi og faglegu innra starfi í samvinnu við forstöðumann.
  • Leiðbeina og taka þátt í leik og starfi með börnum.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
  • Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
  • Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfinu.
  • Góð færni í samskiptum.
  • Almenn tölvu- og samskiptamiðlakunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur4. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Logafold 1, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar