

Aðstoðarfólk óskast
==========
English Below
==========
Um starfið
Ég er að leita að persónulegu aðstoðarfólki til að vinna hjá mér og aðstoða mig hvar sem ég er og hvert sem ég fer. Ég þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs, m.a. við hreinlæti, klæðnað, tiltekt, eldamennsku, áhugamál o.fl.
Ég bý í 103 Reykjavík, vinn við hugbúnaðarþróun, er menntaður tölvunarfræðingur og ek minn sérútbúna bíl með stýripinna. Ég er rólegur og yfirvegaður einstaklingur sem nýtur þess að ferðast, fara á tónleika, skemmta mér og njóta lífsins :)
Starfshlutfall og vaktir
Ég leita að aðstoðarfólki í fullt starf, en hlutastörf koma einnig til greina. Vaktir eru venjulega 12 tímar (10:00–22:00 eða 22:00–10:00) og skipulagðar á 4 vikna tímabili sem endurtekur sig. Sveigjanleiki er nauðsynlegur, til dæmis vegna ferðalaga. Svefn er leyfilegur á nóttunni, þó þarf aðstoðarfólk að vakna til að veita aðstoð.
-
50% starf: 6 vaktir á hverju 4 vikna tímabili.
-
83% starf: 10 vaktir á hverju 4 vikna tímabili.
-
100% starf: 12 vaktir á hverju 4 vikna tímabili.
==========
About the Role
I’m looking for a Personal Assistant to accompany me on my daily adventures, providing support with various tasks. Your responsibilities would include assisting with getting dressed, taking baths, cooking meals, doing household chores, and other miscellaneous duties.
I live in 103 Reykjavík, work as a software developer, and drive my own car using a joystick. I’m a relaxed and easygoing person who loves traveling, attending concerts, and having fun! :)
Positions & Schedule
I am looking for a full-time assistant, though part-time positions may also be considered. Shifts are usually 12 hours long (10:00–22:00 or 22:00–10:00) scheduled over a 4-week period that repeats every 4 weeks. Some flexibility is required, for example, during travel. Sleeping is permitted during night shifts; however, you must wake up to provide assistance when needed.
-
50% position: 6 shifts per 4-week cycle.
-
83% position: 10 shifts per 4-week cycle.
-
100% position: 12 shifts per 4-week cycle.
Sem persónulegt aðstoðarfólk eru heiðarleiki, áreiðanleiki og góð samskiptahæfni nauðsynlegir eiginleikar. Þótt sveigjanleiki og að vera í góðu líkamlegu formi skipti máli fyrir dagleg verkefni, þá byggir starfið fyrst og fremst á persónulegum eiginleikum líkt og trausti, virðingu, jákvæðni og þolinmæði. Stundvísi er að sjálfsögðu lykilatriði.
-
Skilyrði: Viðkomandi þarf að vera reyklaus og með ökuskírteini. Æskilegur aldur er á bilinu 25 til 45 ára.
-
Líkamlegt form og sveigjanleiki: Góð líkamleg heilsa er kostur og sveigjanleiki er mikilvægt til að hlutirnir gangi vel fyrir sig.
-
Þekking: Þekking á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) er kostur.
==========
Requirements and Personal Traits
As a personal assistant, honesty, reliability, and strong communication skills are essential qualities. While flexibility and physical fitness are important for the daily tasks, the role truly relies on personal qualities like trust, respect, and a positive, patient attitude. Punctuality is, of course, important.
-
Essentials: You must be a non-smoker with a valid driver’s license. Ideally, you are between the ages of 25 and 45.
-
Physicality & Flexibility: Being in good physical shape is a plus, and flexibility is important to ensure everything runs smoothly.
-
Knowledge: Familiarity with the philosophy of Independent Living and User-Controlled Personal Assistance (NPA) is also beneficial.
- Meiri frítími: Með löngum 12 tíma vöktum færðu fleiri frídaga í hverjum mánuði samanborið við hefðbundin störf.
-
Stutt vinnuvika: 36 stunda vinnuvika fyrir 100% starf.
-
Sofandi næturvakt: Á næturvöktum má sofa þrátt fyrir það sé borgað fyrir vakandi næturvakt, en þú þarft að vakna þegar aðstoðar er þörf.
-
Rólegt andrúmsloft: Næði er oft til staðar á dagvöktum þegar ég er upptekinn í tölvuvinnu, sem gerir starfið oft rólegt og veitir tíma fyrir þig.
-
Ferðalög og ævintýri: Möguleiki á að ferðast og taka þátt í lífinu með mér, sem gerir starfið áhugavert og gefandi.
==========
Benefits
-
More Free Time: With a long 12-hour shifts, you’ll have fewer working days per month than in a traditional job.
-
Short Workweek: A 100% position is only 36 hours a week.
-
Sleeping night shift: You are paid for an awake night shift, even though sleeping is allowed. However, you must wake up to provide assistance when needed.
-
Relaxed Atmosphere: Since I’m often focused on my computer work, there is plenty of downtime during the day for you to relax or attend to your own things.
-
Travel & Adventures: You’ll have the chance to travel and share experiences with me, making the work both varied and rewarding.
Íslenska
Enska


















