Aðstoðardeildarstjóri Veitingaþjónustu
Veitingaþjónusta Landspítala óskar eftir að ráða öflugan aðstoðardeildarstjóra til að taka þátt í umbreytingu á spennandi starfsemi inn í nýja tíma sem framundan eru.
Veitingaþjónusta heyrir undir Rekstrar- og mannauðssvið og rekur eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi, þar sem daglega eru framleiddar um 6.000 einingar fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk. Deildin rekur einnig 11 matsali og 2 kaffihús undir nafninu ELMA matsalir. Hjá veitingaþjónustu starfa rúmlega 100 einstaklingar í samhentri deild og fást við fjölbreytt og skemmtileg verkefni.
Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, farsæla stjórnendareynslu, hæfni til að móta jákvætt starfsumhverfi og byggja upp sterka liðsheild. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, eldmóði og miklum áhuga á að starfa með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans til að stuðla að framþróun á starfsemi veitingaþjónustu.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. janúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar, jákvætt lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Fagleg vinnubrögð og framúrskarandi skipulags- og greiningarhæfni
Stjórnunarreynsla, t.d. á sviði viðamikilla verkefna, málaflokka eða úr sambærlegum rekstri
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er æskileg
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur og stjórnar daglegri mönnun í samráði við deildarstjóra
Styður deildarstjóra við reglulega endurskoðun mönnunarlíkana og vinnuskipulags
Ber ábyrgð á birtingu vaktaáætlana og yfirferð vinnustunda í samstarfi við aðra stjórnendur veitingaþjónustu
Ber ábyrgð á öryggisstarfi sem snýr að starfsfólki og vinnuvernd, t.d. hvíldartímar, heilsuvernd, áhættumat starfa o.fl. ásamt umbótum
Umsjón með gerð og endurskoðun starfslýsinga
Umsjón með móttöku nýs starfsfólks og nýliðaþjálfun
Skipuleggur og styður deildarstjóra við starfsmannasamtöl ásamt því að bregðast við umbótum
Umsjón með fræðslumálum ásamt því að vera tengiliður við menntastofnanir varðandi nema í matartækni, næringar-/matvælafræði og matreiðslunámi