Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Aðstoðardeildarstjóri sjúkra- og iðjuþjálfunar - Hrafnista Nesvellir

Sjúkra- og iðjuþjálfunardeild Hrafnistu Nesvöllum og Hlévangi óskar eftir að ráða sjúkraþjálfar í aðstoðardeildarstjórastöðu.Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans, aðstoðar með ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildarinnar auk hefðbundinna sjúkraþjálfunarstarfa.Framundan eru spennandi tímar á Nesvöllum en í vetur fer heimilið úr einni deild með 60 íbúa í þrjár deildir með samtals 140. Um leið flytja íbúar á Hrafnistu Hlévangi yfir á Nesvelli.Stefnt er á að nýjar deildir verði teknar í notkun undir lok árs og leitum við því að öflugum leiðtoga til taka þátt í þessu krefjandi og jafnframt skemmtilega verkefni með okkur.


Um er að ræða fjölbreytt starf í þágu íbúa sem krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og framúrskarandi samskiptahæfni.

Um 80-100% starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við stjórnun og rekstur á starfsemi deildarinnar
  • Aðstoð við að skipuleggja störf starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
  • Aðstoð við umsjón á eftirliti og mati á gæðum sjúkraþjálfunar
  • Skoðun, mat og gerð meðferðaráætlunar fyrir íbúa
  • Greining og meðferð skjólstæðinga sem sækja dagendurhæfingu
  • Ráðgjöf og fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
  • Eftirfylgni á einstaklings- og hópþjálfun íbúa
  • Þverfagleg teymisvinna
  • Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
  • Góð samskiptahæfni og faglegur metnaður
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði
  • Áhugi á að starfa með öldruðum
  • Góð yfirsýn og skipulagshæfni
  • Þekking á RAI mælitækinu er kostur
Fríðindi í starfi
  • Fjölskylduvænt og sveigjanlegt starfsumhverfi
Auglýsing birt2. júlí 2025
Umsóknarfrestur23. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Faxabraut 13, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar