Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Aðstoðardeildarstjóri óskast á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands - Vestmannaeyjum.

Aðstoðardeildarstjóri óskast á sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum. Starfshlutfall er 80-100% og skiptist í almennt starf á deild og stjórnunarstarf. Starfið veitist frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi.

Á sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum er mikið lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi. Deildin er blönduð 18 rúma deild sem nær yfir hjúkrun flestra sjúklingahópa, en þar af eru 8 hjúkrunarrými. Dagdeild lyfjagjafa fer einnig fram á sjúkradeild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildinni í samráði við deildarstjóra. 

Bera ábyrgð á starfsemi, mönnun, rekstri deildar, skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra.

Ábyrgð á faglegum verkefnum og gæðamálum í samráði við deildarstjóra. 

Klínískt starf. 

Önnur störf sem stjórnandi felur. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er nauðsynlegt.

Framhaldsnám í hjúkrun og eða í stjórnun er æskilegt.

Stjórnunarreynsla æskileg.

Metnaður, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.

Framúrskarandi samskiptahæfni.

Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf.

Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur3. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sólhlíð 10, 900 Vestmannaeyjar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar