Aðstoðardeildarstjóri á Brjóstamiðstöð - deild skimunar og greiningar brjóstameina
Laus til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra á Brjóstamiðstöð á Eiríksgötu 5. Við leitum eftir metnaðarfullum geislafræðingi með brennandi áhuga á þjónustu á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð ásamt gæða- og umbótastarfi. Unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. janúar 2025 eða eftir samkomulagi.
Á Brjóstamiðstöð starfar kraftmikill hópur sem sinnir skimun, greiningu og meðferð á meinum í brjóstum. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í þverfaglegum teymum innan Brjóstamiðstöðvar og sinnir einnig ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
Framhalds- eða viðbótarmenntun æskileg
Starfsreynsla sem geislafræðingur
Faglegur metnaður
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Stjórnunarþekking, reynsla og leiðtogahæfni
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur í samráði við deildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
Ber ábyrgð á verkefnum sem deildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í skimunar- og greiningarhluta Brjóstamiðstöðvar
Framkvæmd brjóstarannsókna
Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra
Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd þjónustu skimunar- og greiningar Brjóstamiðstöðvar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar