Teigarhorn
Teigarhorn
Teigarhorn

Aðstoð við landvörð á Teigarhorni

Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir aðila til að aðstoða landvörð á Teigarhorni í Berufirði. Um a.m.k. 50% sumarstarf er að ræða í a.m.k. einn mánuð en viðkomandi getur fengið starf sem flokkstjóri í vinnuskóla Múlaþings á Djúpavogi til að fylla upp í 100% starf.

Umsækjandi þarf að verða sér úti um húsnæði búi viðkomandi ekki í nágrenni Teigarhorns.

Teigarhorn við Berufjörð er friðlýst sem fólkvangur og hluti jarðarinnar er náttúruvætti, á svæðinu starfar landvörður sem vaktar svæðið og veitir allar helstu upplýsingar. Innan marka jarðarinnar er einn merkasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Bilpróf er skilyrði.
Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Góð færni í mannlegum samskiptum.
Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Reynsla af landvörslu er kostur.
Landvarðarréttindi er kostur.
Tungumálakunnátta er kostur.
Þekking á svæðinu kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn landvarsla.
Eftirlit með svæðinu, reglulegar eftirlitsferðir, tína rusl úr fjörum.
Fræðslugöngur með gesti.
Fylgjast með fugla- og dýralífi svæðisins.
Móttaka gesta í steinasafni og fræðsla.
Daglegar úrkomumælingar.
Vakta ástand stíga og gönguleiða reglulega og bæta úr ástandi ef þörf krefur.
Ýmis viðhaldsvinna.
Vakta dreifingu ágengra, framandi tegunda á svæðinu og uppræta eftir föngum.
Auglýsing birt21. febrúar 2022
Umsóknarfrestur13. mars 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Teigarhorn 159139, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar