Kambar Byggingavörur ehf
Kambar eru ein sterk heild, sameinuð úr fjórum rótgrónum íslenskum framleiðslu-fyrirtækjum. Í sameiningu myndum við einn stærsta framleiðanda landsins á gluggum, hurðum, gleri og svalahandriðum fyrir íslenskar aðstæður.
Við búum yfir framúrskarandi íslensku hugviti og höfum áratugalanga reynslu af því að framleiða gæðavörur sem standast kröfuharðar íslenskar aðstæður. Sú þekking og handverk má ekki tapast úr íslenskum iðnaði.
Kambar leggja alla áherslu á að halda þessari ómetanlegu íslensku sérfræðiþekkingu innan landsteinanna. Þannig sköpum við störf, höldum virðisaukningunni innanlands og tryggjum að við getum áfram brugðist hratt við og átt í mjög góðu samtali við viðskiptavininn. Því á endanum snýst þetta allt um hann. Viðskiptavinurinn á skilið að geta valið íslenskar gæðavörur sem framleiddar eru með íslenskar aðstæður í huga.
Aðalbókari Kambar byggingavörur ehf
Við leitum eftir einstakling sem er metnaðarfullur, jákvæður og drifandi. Viðkomandi
þarf að hafa góða þekkingu á bókhaldi og reikningsskilum ásamt því að hafa brennandi
áhuga á því að sinna daglegum störfum sem falla undir svið fjármálastjóra hjá fyrirtækinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds í framleiðslufyrirtæki
- Bókfærsla almenns kostnaðar
- Bókfærsla hráefnisinnkaupa
- Bókfærsla kostnaðar í verksmiðjum félagsins
- Bókfærsla innflutnings á hráefnum og vörum til endursölu
- Mánaðarleg bókun hráefnisnotkunar
- Afstemmingar
- Banki
- Viðskiptamenn
- Lánadrottnar innlendir
- Lánadrottnar erlendir
- Mánaðarleg uppgjör
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi t.d.viðskiptafræði eða sambærilegt námi
- Reynsla af færslu bókhalds í fyrirtæki með birgðahald er algjört skilyrði
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking og reynsla af DK hugbúnaður bókhaldskerfi er kostur
Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur24. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Smiðjuvegur 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)