Íslensk erfðagreining
Íslensk erfðagreining leitar að góðu fólki sem hefur hæfileika og metnað til að leggja sitt á vogaskálarnar í þágu vísinda og hefur upp á að bjóða gott starfsumhverfi og mikla möguleika á starfsþróun.
Aðalbókari
Íslensk erfðagreining leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf aðalbókara á fjármálasviði fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af yfirumsjón á bókhaldssviði, hafa yfirgripsmikla þekkingu á almennum bókhaldsreglum ásamt farsælli reynslu af stjórnun og mannaforráðum ásamt framúrskarandi enskukunnáttu.
Starfið heyrir undir fjármálastjóra en er einnig unnið í samvinnu við aðra deildarstjóra og yfirmenn fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og ábyrgðaraðili á daglegri vinnslu og verkstýringu bókhaldsdeildar
- Ítarleg ársfjórðungsskil til móðurfélags
- Mánaðarleg uppgjör, árshlutauppgjör og ársuppgjör
- Skýrslugjöf til lykilstjórnanda ásamt eftirfylgni áætlana
- Fylgir eftir innra eftirliti og sjá um að það sé virkt
- Umsjón með verkferlum fjárhagsdeildar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í viðskiptafræðum af endurskoðunar- eða fjármálasviði
- Reynsla af reikningshaldi, bókhaldi og ársuppgjörum
- Mjög góð íslensku og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Nákvæm vinnubrögð
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Góð almenn tölvukunnátta, þ.m.t. excel og Navision
Fríðindi í starfi
- Niðurgreitt mötuneyti
- Næg bílastæði og búningsaðstaða í húsi
- Samgöngusamningur, íþróttastyrkur ásamt fleiru
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur20. september 2024
Tungumálahæfni
EnskaFramúrskarandi
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Sturlugata 8, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁrsreikningarDynamics NAVMicrosoft ExcelSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStarfsmannahaldTeymisvinnaUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar