A4
A4
A4

A4 Selfoss – Skemmtilegasta sumarstarfið!

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í verslun okkar á Selfossi. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa í 50 – 100% starfshlutfall í sumar. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Henný í síma 580-0070.

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.

Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur2. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Austurvegur 24-26, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar