

4. eða 5. árs læknanemi í sumarafleysingu - Eir endurhæfing
Auglýsum eftir læknanema sem lokið hefur að lágmarki 4 ári í námi til að aðstoða sérfræðilækna og í sumarafleysingu á Eir endurhæfingu.
Deildin er fjölbreytt og skemmtileg og sinnir í samstarfi við Landspítala öldrunarendurhæfingu sem framhaldsmeðferð eftir bráð veikindi eða brot. Hefur frábæran meðferðarárangur og þar starfar öflugt teymi starfsmanna ásamt þverfaglegu teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkra- og iðjuþjálfara og félagsráðgjafa.Um dagvinnustarf er að ræða en möguleiki er á að taka hjúkrunarvaktir utan dagvinnu og vera þá í vaktavinnu á móti sem getur aukið tekjuöflunarmöguleika.
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja kynnast öflugu endurhæfingarteymi í öldrun. Hjá okkur starfa tveir sérfræðilæknar í öldrunarlækningum og einn sérfræðingur í heimilislækningum.
- Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu undir leiðsögn sérfræðilæknis
- Almenn læknisstörf á deild undir leiðsögn sérfærðings
- Vinna við útskriftir og samskipti vegna sjúklinga
- Gerð beiðna og læknabréfa
- Að hafa lokið 4. ári í læknisfræði eða meira
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Reynsla af Sögu sjúkraskráningarkerfi er kostur
- Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptafærni
- Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
Íslenska










