
Leikskólinn Strandheimar
Vinnustaðurinn

O miejscu pracy
Leikskólinn Strandheimar - Brimver og Æskukot
Leikskólinn Strandheimar er starfræktur á tveimur starfsstöðum, Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri. Leikskólinn er fjögurra deilda og eru eldri og yngri deild á sitthvorri starfsstöðinni.
Leikskólinn starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla, auk þess að vera Heilsueflandi leikskóli og Skóli á grænni grein.
Leiðarljós Strandheima eru Vellíðan - Sköpun - Virðing og eru þau leiðarvísir að þeim markmiðum sem við viljum að séu gegnum gangandi í leikskólastarfinu og samskiptum innan hans. Það er mikilvægt að stórum sem smáum líði vel, að virðing sé borin fyrir náunganum og að sköpunarkraftur einstaklingssins fái notið sín.
Það er ósk okkar að börnin:
Kynnist leikgleði
Öðlist færni í samskiptum
Læri að meta hreyfingu og þá ánægju sem hreyfing veitir
Fái frelsi til sköpunar í leik og starfi
Hlutverk kennarans er að vera góð fyrirmynd, grípa tækifærið og vera minnugur þess að leikurinn er námsleið leikskóla.
Blómsturvellir 1, Stokkseyri og Túngata 39, Eyrarbakka