Taktikal
Taktikal
Taktikal

Viltu vera næsta tækni- og þjónustuhetja Taktikal? 🚀

Ert þú týpan sem elskar að leysa flóknar þrautir, færð fiðring í magann yfir góðu notendaviðmóti og brennur fyrir því að láta viðskiptavinum líða eins og þeir séu í öruggum höndum?

Taktikal leitar að drífandi og tæknisinnaðri þjónustuhetju til að ganga til liðs við okkur. Við erum í örum vexti og þurfum manneskju sem getur tæklað allt frá daglegum stuðningi yfir í að innleiða lausnir fyrir ánægða viðskiptavini.

Um hvað snýst starfið?

Þetta er fjölbreytt hlutverk þar sem engir tveir dagar eru eins. Þú munt verja hluta tímans í að svara fyrirspurnum og aðstoða viðskiptavini. Hinn hluti tímans fer í að tryggja að viðskiptavinir okkar nýti lausnir Taktikal til fulls og ýmsa aðstoð við söluteymið okkar.

Hver ert þú?

Við leitum að manneskju sem þrífst í kraftmiklu umhverfi þar sem hlutirnir gerast hratt.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur brennandi áhuga á tækni og getur tileinkað þér ný kerfi á mettíma.

  • Ert með framúrskarandi samskiptahæfileika og þjónustulund.

  • Skrifar og talar framúrskarandi íslensku og ensku.

  • Hefur samviskusemi, vandvirkni að leiðarljósi og leitar alltaf leiða til að gera hlutina betur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framlínustuðningur: Svara fyrirspurnum af öryggi og fagmennsku.

  • Sölustuðningur: Aðstoða söluteymið okkar, t.d. með því að setja upp lifandi „demo“ fyrir viðskiptavini.

  • Innleiðing (Onboarding): Aðstoða nýja viðskiptavini við uppsetningu og þjálfun í samstarfi við söluteymið okkar.

  • Sköpun og miðlun: Skrifa leiðbeiningar, fréttabréf og hjálpargreinar sem gera líf notenda auðveldara.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. viðskipti eða markaðsmál) 
  • Reynslu af framlínustarfi eða starfi í þjónustuveri er stór plús
Fríðindi í starfi

Nútímaleg skrifstofa í Reykjavík (með útsýni)

Frábær matur (þar á meðal vegan)

Stuðningur við vöxt í starfi

Íþróttastyrkur

Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RecepcjaPathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pisanie artykułówPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.InnowacyjnośćPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.CopywritingPathCreated with Sketch.SkrupulatnośćPathCreated with Sketch.praca pod presjąPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe