
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. voru stofnaðar 1. september 2025 og munu fyrir 1. júlí 2026 taka við rekstri almenningssamgangna á svæðinu, strætisvagna og Borgarlínunnar, þegar hún hefur akstur.
Markmið félagsins er að skapa traustari og skilvirkari almenningssamgöngur til framtíðar, sem styður beint við meginmarkmið samgöngusáttmálans um greiðar, hagkvæmar, öruggar og vistvænar samgöngur.
Þjónustufulltrúar á stjórnstöð – hlutastarf á kvöld- og næturvöktum
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. leita að öflugum og þjónustumiðuðum einstaklingum í starf þjónustufulltrúa í stjórnstöð. Um er að ræða hlutastarf á kvöld- og næturvöktum.
Stjórnstöðin gegnir mikilvægu hlutverki í rekstri almenningssamgangna en meginhlutverk hennar er að styðja við vagnstjóra og viðskiptavini. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem öll miða að því að stuðla að öryggi farþega, góðri þjónustu, bregðast við frávikum og tryggja skilvirkt upplýsingaflæði.
Starfið hentar vel fyrir einstaklinga sem hafa tök á að vinna um kvöld og nætur, t.d. með námi eða annarri vinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirsýn aksturs og fylgni við áætlanir almenningssamgangna
- Upplýsingagjöf og þjónusta gagnvart farþegum og vagnstjórum
- Viðbrögð og eftirfylgni með frávikum í akstri
- Miðlun upplýsinga til þjónustuvers og notenda um frávik, breytingar og annað sem kemur upp og hefur áhrif á þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustörfum er kostur
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Góð hæfni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
- Þekking á gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins
- Lausnamiðuð nálgun, skipulag og ábyrgð
Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań8. June 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaInterakcje międzyludzkieNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðis- og varahlutamóttöku Volvo og Polestar-Reykjavík
Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg

Starfsmaður í þjónustukjarna Ferro Zink
Ferro Zink hf

Þjónustufulltrúi - kjaramál
Verkalýðsfélag Suðurlands

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Vaktstjóri á þjónustuborð - helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Afgreiðslu og sölufulltrúi í Reykjavík
Avis og Budget

Framtíðarstarf Vefnaðarvörudeild Vogue.
Vogue

Vörumerkja- og verslunarfulltrúi (hlutastarf)
Dropi ehf

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðis- og varahlutamóttöku Ford-Reykjavík
Ford á Íslandi | Brimborg

Verkstæðismóttaka
BSB og Synir

Þjónustufulltrúi óskast í Borgarnesi
Vörumiðlun ehf

Þjónusturáðgjafi
Veitur