Icepharma
Icepharma
Icepharma

Viðskiptastjóri hjá Icepharma Velferð

Viltu taka þátt í að móta heilbrigðis- og velferðarþjónustu framtíðarinnar?

Icepharma Velferð leitar að drífandi, lausnamiðuðum og metnaðarfullum viðskiptastjóra með menntun á sviði hjúkrunarfræði eða annarra heilbrigðisvísinda, brennandi áhuga á tækni og nýjum lausnum og metnað til að taka þátt í framþróun heilbrigðiskerfisins með tilkomu tækninnar.

Við leitum að einstaklingi sem sér tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir, er óhræddur við að prófa nýjar leiðir og hefur áhuga á að þróa þjónustu sem getur breytt því hvernig heilbrigðis- og velferðarþjónusta er veitt.

Um er að ræða tímabundið starf til 12-15 mánaða.

Icepharma Velferð vinnur að innleiðingu og uppbyggingu nýrra heilbrigðis- og velferðartæknilausna sem styðjur fólk til að lifa sínu lífi á eigin forsendum og gera umönnunaraðilum kleift að veita örugga, faglega og skilvirka þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að innleiðingu og uppbyggingu nýrra velferðar- og heilbrigðistæknilausna
  • Greina og þróa ný viðskiptatækifæri og þjónustuleiðir fyrir heilbrigðis- og velferðarkerfið
  • Byggja upp og þróa sterk viðskiptatengsl við heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og aðra samstarfsaðila
  • Kynna nýjar lausnir, veita ráðgjöf og fylgja verkefnum eftir frá fyrstu hugmynd að innleiðingu
  • Vinna náið með erlendum birgjum og samstarfsaðilum að þróun markaðarins
  • Greina þarfir viðskiptavina og finna lausnir sem skapa raunverulegt virði
  • Taka þátt í verkefnastýringu, tilboðsgerð, útboðum og samningum
  • Þátttaka í kynningum, fundum, ráðstefnum og fræðslu hérlendis og erlendis


Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarfræði eða sambærileg menntun í heilbrigðisvísindum
  • Brennandi áhugi á tækni, nýsköpun og nýjum lausnum í heilbrigðisþjónustu
  • Lausnamiðað hugarfar, frumkvæði og drifkraftur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Vilji og hugrekki til að prófa nýjar leiðir og takast á við verkefni þar sem ekki er alltaf fyrirfram ákveðin lausn
  • Hæfni til að sjá tækifæri, þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd
  • Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfni
  • Hæfni til að setja sig hratt inn í nýjar og flóknar lausnir og miðla þeim á skýran hátt
  • Reynsla af sölu, ráðgjöf, verkefnastýringu eða viðskiptaþróun er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku
Um vinnustaðinn

Sjá nánar um vinnustaðinn hér.

Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań4. October 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Lyngháls 13/Krókh 14 13R, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Tagi zawodowe