Lyfjastofnun
Lyfjastofnun

Verkefnastjóri skráninga

Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnastjóra skráninga í ferlastjórnunarteymi. Teymið heyrir undir deildina gæðamat og er á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi til að sinna verkefnastjórnun og umsjón með lyfjaskráningum. Um 100% starf er að ræða og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun og umsjón með markaðsleyfisumsóknum frá upphafi til loka skráningaferils
  • Umsjón og verkefnastýring annarra matsverkefna
  • Verkefnastýring vísindaráðgjafar sem sinnt er af Lyfjastofnun
  • Samskipti við erlendar lyfjastofnanir og markaðsleyfishafa
  • Miðlun og upplýsingagjöf er varðar lyfjaskráningar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Grunn- og meistaragráða á heilbrigðis- eða raunvísindasviði
  • Reynsla og/eða nám í verkefnastjórnun er kostur
  • Þekking og/eða reynsla á sviði lyfjaskráninga er kostur
  • Þekking á lyfjaskráningakerfum er kostur
  • Þekking á íslenskri og evrópskri lyfjalöggjöf er æskileg
  • Mjög góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð tölvufærni
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og færni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Lyfjastofnun heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og sér um að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun starfar eftir mannauðsstefnu sem miðar að því að hafa helgað starfsfólk, rétt fólk á réttum stað og að vera eftirsóknarverður vinnustaður. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań12. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.FarmaceutaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.PrecyzjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Zawody
Tagi zawodowe