

Viðskiptastjóri á matvörumarkaði
Coca-Cola á Íslandi leitar metnaðarfullum og söludrifnum einstaklingi í starf viðskiptastjóra á matvörumarkaði. Viðskiptastjóri ber ábyrgð á að halda vel utan um viðskiptatengsl og greina tækifæri fyrir okkar frábæru vörumerki hjá viðskiptavinum okkar. Starfið er fjölbreytt, lifandi og krefst greiningarhæfni og skipulags.
Starfið heyrir undir forstöðumann sölu á matvörumarkaði og vinnur þétt með öðrum stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins.
-
Viðhalda og efla viðskiptatengsl
-
Fylgja eftir sölu og markaðsáherslum
-
Greining gagna
-
Samningagerð
-
Sala og þjónusta við viðskiptavini
-
Brennandi áhugi á sölu og þjónustu
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Góð greiningarhæfni
-
Metnaður, áreiðanleiki, fagleg vinnubrögð og frumkvæði
-
Reynsla af sölustarfi/eða viðskiptastjórn er kostur
-
Góðir skipulagshæfileikar
-
Góð ensku-og íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
-
Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér nýjungar
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað í alþjóðlegu umhverfi þar sem unnið er með sterkustu vörumerkjum heims.
islandzki










