Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni

Verslunarstjóri í sýningarsal

Langar þig að vinna í lifandi og skemmtilegu umhverfi sem þjónustar veitingabransann og verslanir á Íslandi?


BAKO VERSLUNARTÆKNI leitar að nýjum starfsmanni í afgreiðslu og umsjón með sýningarsal fyrirtækisins á Draghálsi 22 í Reykjavík. Við leitum að nýjum samstarfsfélaga sem hefur góða þekkingu á öllu sem snýr að veitingageiranum, hótelum og verslunum.

Starfið felst í móttöku og afgreiðslu viðskiptavina sem og umsjón og ábyrgð á uppstillingum og áfyllingu í stærsta sýningarsal á Íslandi með veitingavörur. Viðkomandi starfsmaður tilheyrir hópi öflugra sérfræðinga í verslana- og veitingalausnum, bæði fyrir fagfólk og ástríðukokka. Starfið er til dæmis upplagt fyrir kokk eða þjón sem gæti hugsað sér að vinna hefðbundna dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla, móttaka og ráðgjöf til viðskiptavina.
  • Samskipti við söluaðila og viðskiptavini.
  • Uppstillingar og áfyllingar.  
  • Ábyrgð á vörum í sal ásamt vöruvali.
  • Umsjón með vefpöntunum.
  • Þátttaka í að þróa og uppfæra heimasíðu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Rík þjónustulund og vilji til að veita framúrskarandi þjónustu.
  • Reynsla af þjónustu og sölu.
  • Reynsla og þekking af veitingageiranum er kostur.
  • Góð framkoma og samskiptahæfni.
  • Jákvæðni, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
Utworzono ofertę pracy11. June 2025
Termin nadsyłania podań22. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Dragháls 22
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia