
Verslunarstjóri AIR
Erum við að leita að þér?
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum verslunarstjóra fyrir AIR.
Um er að ræða spennandi og krefjandi fullt starf hjá einni vinsælustu fataverslun landsins, þar sem áhersla er lögð á gæði, þjónustu og framsækna vörulínu.
Verslunarstjóri AIR ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar, þar með talið afgreiðslu, sölu og þjónustu, starfsmannahaldi, vaktaplani, innkaupum og áætlanagerð. Mikil áhersla er lögð á faglega þjónustu, góða stemningu og sterkt teymi. Vinnutími er alla virka daga með möguleika á helgarvinnu. Við leitum að manneskju með mikla leiðtogahæfileika og reynslu af verslunarstjórastarfi.
- Býr yfir miklum leiðtogahæfileikum og reynslu af stjórnunarstörfum
- Hefur góða skipulagshæfni og metnað til að ná árangri
- Er þjónustulundaður, jákvæður og drífandi
- Hefur áhuga á tísku, íþróttafatnaði og Nike vörumerkinu
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
- Daglegur rekstur
- Innkaup
- Sala
- Áætlanagerð
- Starfsmannahald og vaktarplön
- Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
- 25 ára eða eldri
- Reynsla af stjórnunarstarfi skilyrði
- Leiðtogahæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Stundvísi og góð framkoma
- Sveigjanleiki
- Framúrskarandi þjónustulund
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslensku og ensku kunnátta
- Spennandi starf í kraftmiklu og lifandi umhverfi
- Tækifæri til að hafa áhrif á rekstur og þróun verslunar
- Sterkt og styðjandi teymi innan S4S
- Kynni af nýjustu vörum frá Nike og öðrum leiðandi merkjum
- Starf í fyrirtæki með skýra framtíðarsýn og vaxandi starfsemi












