Aðföng
Aðföng
Aðföng

Verkstjóri í frysti og kæligeymslu Aðfanga

Aðföng leita eftir hraustum og duglegum starfskrafti í frysti og kæligeymslu fyrirtækisins. Viðkomandi ber ábyrgð á teymi deildarinnar, utanumhald og verkstjórn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á tiltekt á vörum til viðskiptavina
  • Ber ábyrgð á að pantanir séu rétt unnar
  • Yfirumsjón með móttöku á vöru og gámalosun
  • Yfirumsjón með eftirfylgni verkferla og þjálfun nýrra starfsmanna

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi og/eða verkstjórn mikill kostur
  • Lyftararéttindi
  • Stundvísi og góð samskiptahæfni
  • Geta til að vinna undir álagi og í kælirými
  • Íslensku og enskukunnátta er skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk. Við hvetjum öll til þess að sækja um, viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Vinnutími er alla virka daga frá 07:30 til 15:30 og annan hvern laugardag frá 07:30 til 12:00.

Fríðindi í starfi

Íþróttastyrkur

Niðurgreiddur matur í hádeginu

Utworzono ofertę pracy23. May 2025
Termin nadsyłania podań31. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Korngarðar 1, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia