
Intellecta
Um Intellecta:
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu.
👉 Ráðningarsvið Intellecta vinnur með stjórnum og æðstu stjórnendum að ráðningum sérfræðinga og stjórnenda. Jafnframt sinna ráðgjafar okkar ráðgjöf til stjórnenda, atvinnuleitenda og starfslokaráðgjöf.
👉 Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.

Verkefnastjóri stafrænnar þróunar
Stórt og öflugt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða til starfa drífandi verkefnastjóra stafrænnar þróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkefnastjórn á innleiðingu upplýsingatæknikerfa, stafrænna lausna & umbreytingaverkefna
- Greiningarvinna, endurskoðun ferla og verklags
- Leiða þverfagleg verkefnateymi
- Samskipti við viðskiptavini og fagaðila
- Vinna með stjórnendum að því að tryggja framkvæmd verkefna
- Fjárhags- og tímastjórnun verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking á breytingastjórnun
- Reynsla og þekking á innleiðingu hugbúnaðarkefa og/eða lausna
- Reynsla og þekking af Agile aðferðarfræði er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni, framsýni og árangursdrifin hugsun
- Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.
Utworzono ofertę pracy10. March 2026
Termin nadsyłania podań24. March 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Senior Back-End Developer
atNorth

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri samgöngumála
Reykjanesbær

Sölustjóri þjálfunar og tæknilausna
Total Tempo ehf.

Innkaupastjóri Fagkaupa
Fagkaup ehf

Business Central vöruhúsaráðgjafi
Advania

Verkefnastjóri borholuframkvæmda
Veitur

Framleiðslustjóri
Freyja

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Teymisstjóri á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali

Verkstjóri á Útflutnings- og hráefnissviði óskast
Íslenska gámafélagið ehf.

Verkefnastjóri á hjúkrunardeild - Nesvellir (tímabundin ráðning)
Hrafnista

Hefur þú áhuga á vöruþróun, umbótum og verkefnastýringu?
Arion banki