
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Business Central vöruhúsaráðgjafi
Advania leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum vöruhúsaráðgjafa sem brennur fyrir skilvirkum vöruhúsarekstri og nútímalegum ferlum. Ef þú hefur góða yfirsýn yfir aðfangakeðju, skilning á daglegum áskorunum vöruhúsa og þekkingu á Dynamics 365 Business Central, þá er þetta spennandi tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif.
Um hlutverkið
Í þessu hlutverki tekur þú virkan þátt í að móta og innleiða vöruhúsalausnir hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina, þar sem fagmennska, náið samstarf og skýr hönnun eru lykilþættir. Þú tengir saman viðskiptavini, ráðgjafa og tækniteymi og tryggir að lausnirnar skili skýrum árangri – bæði í Business Central og tengdum handtölvulausnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf í Business Central með vöruhúsalausnir sem sérþekkingu
- Greining viðskiptaþarfa og skilgreining krafna
- Forgangsröðun verkefna og umbóta í samstarfi við viðskiptavini
- Hönnun og þróun vöruhúsferla
- Samræming Business Central og handtölvulausnum
- Umsjón með prófunum og innleiðingum
- Náið samstarf með viðskiptavinum, ráðgjöfum og tækniteymum
Menntun og hæfni
- Reynsla af vöruhúsarekstri eða birgðastýringu
- Þekking á ERP kerfum (Business Central / skilyrði)
- Sterk greiningar- og samskiptahæfni
- Reynslu af stjórnun aðfangakeðju, birgðum og vöruhúsum
- Geta til að vinna sjálfstætt í ráðgjafarhlutverki
Í boði
- Fjölbreytt verkefni hjá ólíkum viðskiptavinum
- Starf í öflugu Business Central ráðgjafateymi
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi
- Samkeppnishæf starfskjör
Utworzono ofertę pracy16. March 2026
Termin nadsyłania podań30. March 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Austursíða 6, 603 Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Rekstrarstjóri / Bókhald
Hringiðan Internetþjónusta

Framkvæmdastjóri
Stefna ehf

Tæknilegur bókari
Sessor

Deildarstjóri þjónustudeildar á Norðursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Full-stack forritari
Total Tempo ehf.

Vilt þú taka þátt í að þróa leiðarkerfi Keflavíkurflugvallar?
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Deildarstjóri - Sóltún Heima
Sóltún Heima

Forstöðumaður UT reksturs
Hagar

Ráðgjafi hjá Expectus Finance
Expectus Finance

Hefur þú áhuga á vöruþróun, umbótum og verkefnastýringu?
Arion banki