Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Verkefnafulltrúi hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717

Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir að ráða öflugan verkefnafulltrúa til starfa hjá Hjálparsímanum 1717.

Um er að ræða krefjandi og gefandi starf þar sem þú sinnir svörun í síma og netspjalli fyrir einstaklinga sem leita eftir stuðningi vegna ólíkra áskorana í lífi sínu. Starfið felur einnig í sér utanumhald og stuðning við sjálfboðaliða verkefnisins.

Við leitum að einstaklingi með sterka samskiptahæfni, yfirvegun og raunverulega löngun til að styðja við fólk í viðkvæmri stöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Svörun í Hjálparsíma Rauða krossins á dagtíma.
  • Fræðsla, þjálfun og stuðningur við sjálfboðaliða.
  • Samskipti og fræðsla við samstarfsaðila verkefnisins.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem og þátttaka og stuðningur við annað starf Rauða krossins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. félagsvísindi, eða á sviði geðheilbrigðis.
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi skilyrði.
  • Reynsla af því að starfa með fólki í vanda er æskileg.
  • Jákvæðni, frumkvæði, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af starfi með Rauða krossinum er kostur.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál kostur.
Fríðindi í starfi
  • Hreyfimínútur
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań10. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Komunikacja telefonicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.DostawaPathCreated with Sketch.praca pod presjąPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe