Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Félagsráðgjafi í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar

Leitað er eftir metnaðarfullum og áhugasömum félagsráðgjafa til starfa í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu þjónustu við börn og fjölskyldur í ört vaxandi sveitarfélaginu Árborg þar sem búa rúmlega 13 þúsund íbúar.

Hjá Velferðarþjónustu Árborgar er lögð rík áhersla á snemmtækan stuðning, samþætta þjónustu og farsæld barna. Starfið byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem unnið er náið með fagfólki á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu með það að markmiði að styrkja stöðu barna og fjölskyldna í samfélaginu.

Í starfinu felst meðal annars að veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu til forráðamanna, vinna með fjölskyldum og taka þátt í þróun og framkvæmd þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Að auki er starfsmaður að hluta til að sinna könnun tilkynninga skv. Barnaverndarlögum nr.80/2002.

Velferðarþjónusta Árborgar er framsækinn vinnustaður þar sem unnið er í nánu samstarfi við öflugan hóp fagfólks. Þar gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun þjónustu og vinna að mikilvægum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldis- og foreldraráðgjöf, veitt í viðtölum og á heimilum fólks  
  • Ráðgjöf og stuðningur við fjölskyldur  
  • Málastjórn samþættrar þjónustu og ráðgjöf samkvæmt farsældarlögum  
  • Mat á þörf fyrir þjónustu og úrræði, ásamt gerð þjónustu- og stuðningsáætlana  
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan og utan sveitarfélags  
  • Reglubundin eftirfylgd og mat á árangri þjónustu  
  • Móttaka, greining og úrvinnsla erinda og umsókna  
  • Skýrslugerð og skráning  
  • Könnun barnaverndartilkynninga  
  • Úttekt á heimilum fólks sem hefur sótt um leyfi að gerast stuðningsfjölskylda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem Félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands 
  • Þekking og reynsla af vinnu með barnafjölskyldum innan opinberrar þjónustu er skilyrði. 
  • Þekking og reynsla af starfi sem málstjóri skv. Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 er skilyrði. 
  • Þekking og reynsla af könnun barnaverndartilkynninga skv. Barnaverndarlögum nr.80/2002 er skilyrði. 
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu  
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði velferðarþjónustu . 
  • Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu.  
  • Framúrskarandi hæfni í íslensku. 
Utworzono ofertę pracy27. April 2026
Termin nadsyłania podań7. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Tagi zawodowe