Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Verk- eða tæknifræðingur á fagsviði vélbúnaðar

Ert þú vélasérfræðingur?

Við leitum að verk- eða tæknifræðingi til að ganga til liðs við teymi eignastýringar Landsvirkjunar. Hlutverk og ábyrgð eignastýringar er að tryggja að aflstöðvar og veitumannvirki fyrirtækisins skili hlutverki sínu og sé vel við haldið út sinn líftíma, þar sem stöðugar umbætur og framþróun er stór þáttur. Verkefnin eru fjölbreytt og fela í sér náið samstarf á sviði eignastýringar með öllum aflstöðvum Landsvirkjunar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Greining á fjárfestingaþörf orkumannvirkja í rekstri
  • Undirbúningur og eftirfylgni við fjárfestingaverkefni
  • Forgangsröðun fjárfestingaverkefna
  • Aðkoma að gerð eignaáætlunar til lengri tíma
  • Aðkoma að gerð fjárfestingaáætlunar til skemmri tíma
  • Þátttaka í stöðugum umbótum og þróun lykilmælikvarða

Hæfni:

  • Menntun sem nýtist í starfi, verkfræði eða tæknifræði á fagsviði vélbúnaðar
  • Haldgóð reynsla og þekking sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking af greiningarvinnu og áætlanagerð er kostur
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Utworzono ofertę pracy5. June 2025
Termin nadsyłania podań15. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia