Akureyri
Akureyri
Akureyri

Velferðarsvið: Deildarstjóri í stoðþjónustu

Langar þig að kynnast skemmtilegu fólki og sjálfum þér betur í leiðinni?

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem mannleg samskipti eru í forgrunni.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða einstakling með menntun sem nýtist í starfi í stöðu deildarstjóra í stoðþjónustu.

Um er að ræða ótímabundna ráðningu í 80-100%. Upphaf starfs og vinnutímafyrirkomulag er samkomulagsatriði.

Stoðþjónusta veitir stuðning og ráðgjöf til fólks sem vegna fötlunar, félagslegra aðstæðna og veikinda þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagslega aðlögun og aðstoð við heimilishald. Stuðningurinn getur farið fram á heimili eða utan þess, eftir þörfum hvers og eins.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar vinnur eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn (e. gentle teaching) og valdeflingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur umsjón með uppbyggingu og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri, heildstæðri og sveigjanlegri þjónustu.
  • Vinnur með notendum og eftir atvikum aðstandendum að gerð einstaklingsbundinnar stuðningsáætlunar um stuðning og markmið hennar og er leiðandi í framfylgd hennar.
  • Miðlar upplýsingum og áherslum forstöðumanns þjónustunnar til alls starfsfólks og um breytingar í þjónustu og/eða stefnumótun.
  • Mat á þörf fyrir stuðning hjá nýjum notendum sem og eldri.
  • Er í samstarfi við aðra fagaðila sem tengjast stuðningi við notendur og sér um að miðla upplýsingum áfram til annarra sem að málum koma.
  • Er tengiliður við notendur og aðstandendur.
  • Heldur utan um og skipuleggur stuðningstíma notenda.
  • Skráning og utanumhald á upplýsingum í þar til gerð skráningakerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, eða önnur sambærileg háskólamenntun (BA, BS, BEd) sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af því að vinna með fólki með ýmiskonar færniskerðingu.
  • Þekking á þjónustukerfum velferðar- og heilbrigðismála.
  • Framúrskarandi færni í samskiptum, skipulagningu og verkefnastjórnun.
  • Sjálfstæði í störfum og frumkvæði.
  • Sveigjanleiki og eiga auðvelt með að laga sig að breytingum og breyttum aðstæður með skömmum fyrirvara vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að þjónusta.
  • Þekking og reynsla af ráðgjöf og samhæfingu verkefna er æskileg
  • Framsækin hugsun og hæfni til nýsköpunar.
  • Hafa bíl til umráða og gild ökuréttindi.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Utworzono ofertę pracy20. April 2026
Termin nadsyłania podań10. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Geislagata 9, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.Zdolność do adaptacjiPathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.Doradca społecznyPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.PrecyzjaPathCreated with Sketch.InnowacyjnośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektemPathCreated with Sketch.Nastawienie do klientaPathCreated with Sketch.CierpliwośćPathCreated with Sketch.Terapeuta rozwojowy
Zawody
Tagi zawodowe