Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngra stigi vegna barnsburðarleyfis frá miðjum nóvember og út skólaárið. Í skólanum eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 80 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í Hofsstaðaskóla fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
- Skipuleggur nám og kennslu nemenda
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
- Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Háskólamenntun á sviði uppeldis og menntunarfræða
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum æskileg
- Reynsla af kennslu í grunnskóla eða starfi með börnum
- Reynsla af Leiðsagnarnámi æskileg
- Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
- Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
Utworzono ofertę pracy1. October 2024
Termin nadsyłania podań17. October 2024
Znajomość języków
islandzkiDoskonale
Lokalizacja
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaInterakcje międzyludzkieSamodzielność w pracy
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (2)
Podobne oferty pracy (12)
Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Kennari í íslensku sem annað tungumál - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi
Vatnsendaskóli
Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Sérkennari í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Deildarstjóri við Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Leikskólakennara eða leiðbeinanda
Leikskólinn Laugasól
Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar
Leikskólinn Sjáland
Kvíslarskóli óskar eftir kennara í heimilisfræði
Kvíslarskóli