Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Umsjónarkennari á yngsta stig!

Viltu vera hluti af faglegum og skemmtilegum hópi kennara í Salaskóla?

Hér gæti verið tækifæri fyrir tvo kennara sem langar að vinna saman að sækja báðir um!

Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á næsta skólaári verða nemendur um 500 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa um 100 starfsmenn.

Starfið snýr að almennri bekkjarkennslu á yngsta stigi, í góðri teymisvinnu með öðru fagfólki. Auk kennslu er um að ræða önnur fagleg störf, samstarf við foreldra og aðkomu að vinnslu fjölbreyttra nemendamála, í góðu samstarfi við skólasamfélagið og með velferð og farsæld nemenda að leiðarljósi.

Tveir kennarar sem vilja vinna saman ættu að hugleiða að sækja báðir um!

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Um er að ræða fullt starf með tímabundinni ráðningu til eins skólaárs, en möguleiki á að til áframhaldandi ráðningar geti komið.
  • Starfið gæti hentað 5. árs kennaranema og þá er möguleiki á sveigjanlegu starfshlutfalli.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu. Takist ekki að ráða kennara með leyfisbréf kemur til greina að ráða hæfa leiðbeinendur eða kennaranema.
  • Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi.
  • Áreiðanleiki og stundvísi.
  • Vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
  • Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.

Nánari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Upplýsingar gefur Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, [email protected] eða í síma 441-3200/840-2393.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins. 

Utworzono ofertę pracy4. June 2025
Termin nadsyłania podań18. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Versalir 5, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Odpowiada
Zawody
Oznaczenia