Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Þroskaþjálfa vantar í Salaskóla

Viltu vera hluti af frábærum hópi fagfólks í Salaskóla?

Í Salaskóla vinna þroskaþjálfar, kennarar og annað starfsfólk saman í teymum að kennslu og þjálfun nemenda og við undirbúning og skipulagningu náms. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á næsta skólaári verða nemendur um 500 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa um 100 starfsmenn.

Helstu verkefni snúa að þjálfun og kennslu nemenda með sértækar þarfir, atferlisþjálfun, þjálfun í félagsfærni, gerð einstaklingsáætlana og ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila. Viðkomandi mun vinna í þéttu teymissamstarfi við kennara og aðra samstarfsaðila að námi, þroska og velferð nemenda.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Ráðning er frá 1. ágúst 2025.
  • Um 100% starf er að ræða, tímabundið til loka skólaárs v/ forfalla en með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og leyfisbréf sem þroskaþjálfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð nálgun á viðfangsefni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni.
  • Samstarfshæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í teymiskennslu og teymissamstarfi.
  • Vera tilbúin/n í þverfaglegt samstarf og uppbyggileg samskipti við foreldra og nærsamfélag, með velferð nemenda að leiðarljósi.
  • Hafa gott vald á íslensku.

Nánari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Upplýsingar gefa Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, [email protected] (sími 840-2393) og Hrefna Björk Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected].

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.

Utworzono ofertę pracy3. June 2025
Termin nadsyłania podań1. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Versalir 5, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.CierpliwośćPathCreated with Sketch.Terapeuta rozwojowy
Odpowiada
Zawody
Oznaczenia