Kópavogsskóli
Kópavogsskóli
Kópavogsskóli

Þroskaþjálfi/sérkennari/iðjuþjálfi óskast í Kópavogsskóla

Við í Kópavogsskóla erum að leita að þroskaþjálfa, sérkennara eða iðjuþjálfa til starfa í sérdeild skólans. Um er að ræða 80 til 100% starfshlutfall. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.

Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 nemendur og um 75 starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og ýmis þróunarverkefni eru í gangi.

Í Kópavogsskóla er allir kennarar og nemendur í 1. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti. Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með nemendum með þroskafrávik og fjölbreyttar sérþarfir
  • Taka þátt í gerð og eftirfylgni einstaklingsnámskráa
  • Þjálfa og efla félagsfærni, sjálfstæði og vellíðan nemenda
  • Útbúa og nýta sjónrænt skipulag í daglegu starfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna í teymi með öðrum kennurum og fagfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og sérhæfing sem nýtist í starfi
  • Starfsleyfi/leyfisbréf viðeigandi fagstéttar (fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir er kostur
  • Þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • Færni í gerð sjónræns skipulags
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og faglegur metnaður
  • Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi og áreiðanleiki
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sund í Kópavogi.

Utworzono ofertę pracy10. April 2026
Termin nadsyłania podań24. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Digranesvegur 15, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Uczenie
Zawody
Tagi zawodowe