Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi í þjónustu- og þróun

Þjónustufulltrúi í þjónustu- og þróun á skrifstofu sýslumanns sinnir fjölbreyttum verkefnum á öllum málaflokkum deildarinnar. Verkefni varða lög sem gilda um málaflokkana, s.s. vegabréf, ökuskírteini og fleira. Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á að þjónusta viðskiptavini, taka á móti, afgreiða og skrá beiðnir og gögn og leysa farsællega úr verkefnum. Þjónustufulltrúi skal vinna að faglegri afgreiðslu mála samkvæmt lögum og verkferlum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og samskipti við viðskiptavini 
  • Móttaka viðskiptavina og bein þjónustuviðskipti
  • Afgreiðsla og afhending tilbúinna gagna (s.s. þinglýst skjöl, vegabréf, nafnskírteini, ökuskírteini, stæðiskort, vottorð og leyfi)
  • Flokkun og dreifing gagna sem berast embættinu
  • Móttaka og frágangur á umsóknum um ökuskírteini, vegabréf og nafnskírteini
  • Skjalafrágangur, skönnun og skjalavarsla
  • Sinnir öðrum verkefnum, þvert á embættið 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf skilyrði. Grunnháskólapróf er kostur. 
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á góðri þjónustuupplifun viðskiptavina
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum
  • Sveigjanleiki, álagsþol og aðlögunarhæfni
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Geta til að takast á við áskoranir með jákvæðu viðhorfi
  • Vilji til að þróa eigin færni í takt við þróun starfsins
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
  • Nákvæmni og traust vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Utworzono ofertę pracy15. May 2025
Termin nadsyłania podań30. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Oznaczenia