Sýn
Sýn
Sýn

Þjónustufulltrúi í fyrirtækjaþjónustu

Ert þú tækninörd með þjónustuhjarta?

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum þjónustufulltrúa til starfa í teymi tæknilegrar aðstoðar fyrir fyrirtæki.

Hlutverk þjónustufulltrúa er að aðstoða fyrirtæki sem hafa samband við að greina og leysa tæknileg vandamál, veita upplýsingar og ráðgjöf. Teymið sinnir meðal annars málum sem tengjast fyrirtækjaneti, fastlínum og annari fjarskiptaþjónustu. Starfið krefst góðs tæknilegs skilnings og getu til að vinna markvisst að lausn mála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina og leysa tæknileg vandamál
  • Veita tæknilega aðstoð í gegnum síma, netspjall og tölvupóst.
  • Fylgja eftir tæknimálum viðskiptavina og tryggja að þau séu leyst á skilvirkan og faglegan hátt.
  • Vinna í verklistum tengdum flóknari tæknilegum vandamálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góður tæknilegur skilningur
  • Góð íslensku og ensku- kunnátta er nauðsynleg
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Áhugi á tækni og nýjungum
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Metnaður og frumkvæði
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun æskileg

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun.

Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026.

Nánari upplýsingar veita Sæunn Þórisdóttir, deildarstjóri fyrirtækjaþjónustu, [email protected] eða Anna Huld Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi, [email protected]

Utworzono ofertę pracy22. April 2026
Termin nadsyłania podań4. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe