Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Þjónustufulltrúi fasteignaþjónustu

Umhverfis- og skipulagssvið leitar að iðnmenntuðum starfskrafti til að sinna viðhaldsframkvæmdum á mannvirkjum borgarinnar hjá fasteignaþjónustu sviðsis. Um er að ræða starf við viðhald á mannvirkjum borgarinnar í mismunandi borgarhlutum. Við leitum að aðila með ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum sem getur unnið sjálfstætt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón viðhalds fasteigna Reykjavíkurborgar.
  • Daglegt eftirlit í einstaka viðhaldsverkefnum.
  •  Samstarf við hönnuði, eftirlitsaðila og aðra iðnaðarmenn varðandi viðhald.
  • Vinna samkvæmt viðhaldsáætlun.
  • Gerð verkáætlana vegna ýmissa smærri viðhaldsverka.
  • Starfsmaður sinnir tilfallandi minniháttar vinnu iðnaðarmanna í sínu fagi s.s. lagfæringum og breytingum í fasteignum.
  • Eftirfylgni með að tækni- og gæðakröfur séu uppfylltar í viðhaldsframkvæmdum.
  • Aðkoma að ákvörðunartöku vegna framkvæmda í ófyrirséðu viðhaldi.
  • Skýrslugjöf til fasteignastjóra.
  • Móttaka ábendinga frá notendum fasteigna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmeistari eða iðnsveinn með mikla starfs- eða stjórnunarreynslu á sínu fagsviði.
  • Framhaldsmenntun er kostur s.s. eins og byggingariðnfræði. 
  • Almenn ökuréttindi.
  • Haldbær reynsla við að meta ástand fasteigna og geta til að leiðbeina og hjálpa öðru fagfólki í fasteignatengdum verkefnum með höfuðáherslu á viðhald fasteigna.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Almenn færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist skrifstofustörfum.
  • Íslenskukunnátta B2 og enskukunnátta B1 í samræmi við samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu. 
Utworzono ofertę pracy21. September 2026
Termin nadsyłania podań4. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe