Byko
Byko
Byko

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila

Við erum að leita að öflugum einstaklingum til liðs við okkur í sölu á grófvöru til fagaðila í fagverslun okkar á Selhellu.

Starfið felur í sér ráðgjöf, tilboðsgerð og sölu á grófvöru ásamt eftirfylgni með pöntun og afhendingu til viðskiptavina.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum að starfsfólki með:

  • Metnaði fyrir að veita framúrskarandi sölu- og þjónustuupplifun til viðskiptavina
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Þekkingu á byggingarefni (kostur)
  • Reynslu af sölustarfi (kostur)
  • Góða tölvukunnáttu
  • Íslensku- og enskukunnáttu (skilyrði)


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt tilboðsgerð
  • Eftirfylgni með tilboðum og pöntunum frá upphafi til afhendingar
  • Viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi störf


Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.


BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.


Nánari upplýsingar veitir Bragi Jónsson, rekstrarstjóri ([email protected]).

Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań4. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Selhella 1, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe